Sunna&Harpa&Karen;*

Sköflungarnir!

17.05.2009 20:30:10 / Sunna

Eurovision 2009!

Jæja góðan daginn! Þá er eurovision-keppninni árið 2009 lokið! Þar sem ég er mikill aðdáandi eurovision þá ákvað ég að blogga um þessa ágætu keppni.
Eftir 25 lög, miklar sýningar og góð og léleg tilþrif var komið að úrslitunum. Frá fyrstu tölum var ljóst hvert stefndi. Noregur gjörsamlega tók keppnina í nefið! Settu stigamet sem seint eða aldrei verður slegið, 387 stig! Þetta er náttúrulega bara fáránlegt! Hann Alexander Rybak átti þennan sigur svo sannarlega skilið, með lag sem höfðar til nánast allra, þvílíkan sviðssjarma, snilldar fiðlu og frábæra dansara! Þó aldrei hafi verið nein barátta um fyrsta sætið þá var baráttan þeim mun meiri um 2. sætið. Þar var hörð barátta milli Aserbaíjan, Tyrklands og Íslands!:) Bretland náði einnig að blanda sér eitthvað í þetta. Annað sætið kom ekki í ljós fyrr en rétt í blálokin og að sjálfsögðu var það Ísland sem tryggði sér annað sætið með tólf stigum frá Noregi! Við settum nýtt met í eurovision sögu Íslands, 218 stig, ellefu stigum á undan Aserbaíjan og reyndar heilum 169 stigum á eftir Noregi. 169 stig hafa oft dugað til að sigra þessa keppni!
Annað sætið var sennilega besta sætið sem Ísland gat lent í, enda versti tíminn fyrir okkur að sigra þessa keppni í ár, mitt í þessari kreppu okkar.
Mér fannst úrslitakeppnin í ár mun betri en oft áður, það var þó nokkuð um góð lög. Þið verðið samt að taka þessu með ákveðnum fyrirvara því þegar þessi keppni fer fram á tónlistarsmekkurinn minn það til að breytast aðeins:)
En hér kemur umfjöllun um hvert og eitt lag! :D

1. Litháen. "Love." Ekkert spes lag, minnti mig á eitthvað sem gæti hafa verið vinsælt fyrir svona 5-6 árum. Gef samt plús fyrir píanóið og hattinn;)
2. Ísrael. "There must be another way." Þær sungu um aðra leið, önnur var pakistani og hin arabi. Góður boðskapur en leiðinlegt lag, sem reyndar verður skárra eftir því sem maður hlustar á það oftar.
3. Frakkland. "
Et S'il Fallait Le Faire." Sumum finnst þetta lag frábært, sumum finnst það hundleiðinlegt. Ég er ein af þessum sem finnst þetta ömurlegt lag. Ég náði engri laglínu, viðlagi eða hápunkti í laginu. Söngkona fær þó plús fyrir innlifunina;)
4. Svíþjóð. "La voix." Þetta fannst mér bara ekkert skemmtilegt lag. Maður man laglínuna en mér fannst það bara ekki virka nógu vel.
5.  Króatía. "Lijepa tena." Ágætis flutningur, sæmilega grípandi lag en bara ekkert afgerandi við það.
6. Portúgal. "Todas as ruas do amor." Þótt lagi sé ekkert frábært þá fannst mér það rosalega krúttlegt og flutt af fagmennsku. Þess hljómsveit stendur fyrir sínu og var ekkert að rembast við að vera með flottasta atriðið.
7. Ísland. "Is it true." Þarf að segja eitthvað? Flutningur Jóhönnu var hreinlega sá besti sem ég man eftir í Eurovision! Flytjendurnir frá Íslandi voru einir af þeim sem týndust ekki á þessu stóra sviði. Myndatakan fannst mér líka einna best í okkar lagi :) Lagið finnst mér líka bara flott, ég fæ bara nánast alltaf hroll þegar ég hlusta á það. :)
8. Grikkland. "This is our night." Halló halló! Þetta var nú rosalegt! Sakis Rouvas er náttúrulega snillingur. Þvílíkir danstaktar! xD Það þarf EGÓ til að gera svona! Færiband, rifin skyrta og stökk! Þetta minnti mig pínu á hið frábær lag "Ela ela" sem Kýpur var með árið 2005. Söngvarinn þar var álíka mikið egó. Annars finnst mér lagið bara frekar skemmtilegt!
9. Armenía. "Jan jan." Þetta var eitt af mínum uppáhalds lögum. Mér finnst það skemmtilegt og það kemur mér alltaf í gott skap :)
10. Rússland. "Mamo." Hvernig gat þetta lag lent í 11. sæti? Þetta lag er hryllingur! Hryllilega ósmekklegt eitthvað.
11. Aserbaíjan. "Always on my mind." Grípandi viðlag, annars ekkert frábært.
12. Bosnía&Hersegóvína. "Bistra vodi." Þeir fá plús fyrir að vera öðruvísi. Lagið var einfalt og frekar fallegt, óvenjulegt eurovisionlag. Þessir piltar voru mjög samkvæmir sjálfum sér.
13. Moldavía. "Hora din Moldova." Upplífgandi og fjörugt lag. Mig langar að læra Hora dansinn!
14. Malta. "What if we." Ágætis lag, Chiara þó eiginlega búin að versna síðan hún söng Angel árið 2005. Röddin frekar klemmd, ekki svona opin eins og hjá Jóhönnu ;)
15. Eistland. "Urban Symphony." Mjög sérstakt og nokkuð grípandi lag. Vel flutt.
16. Danmörk. "Believe again." Algjör miðumoð, lagið bara eins og margt annað. Svona lala bara.
17. Þýskaland. "Alex swings, Oscar sings!" Tjah, voða lítið að segja um þetta, frekar spes.
18. Tyrkland. "Düm tek tek." Grípandi lag, samt alltaf það sama aftur og aftur. Flutningurinn var ekki nógu góður en hún Hadise fær plús fyrir að vera ekki ofurgrönn!
19. Albanía. "Carry me with you in your dreams." Mér fannst þetta eitt af bestu lögum keppninnar. Átti alls ekki skilið að lenda í 17. sæti. Söngkonan er afar efnileg og lagið grípandi og flott.
20. Noregur. "Fairytale." Þarf ég að segja eitthvað? Alexander virkilega sætur og indæll náungi og átti sigurinn svo sannarlega skilið;) Sérstaklega úr því að hann samdi lagið :)
21. Úkraína. "Be my valentine!" Ég man aldrei hvernig þetta lag er! Algerlega ofhlaðið atriði, virkaði ekki nógu vel.
22. Rómanía. "Balkan girls." Frekar slappt lag. Jú, maður man hvernig það er, en ég meina, söngur um stelpur í partýi! Það veit aldrei á gott;)
23. Bretland. "It's my time." Druuuullluleiðinlegt lag, viiiiðbjóðslega væmið! Nú átti sko að taka þetta! Andrew Loyd Webber! Mér fannst það lenda of ofarlega. Söngkonan Jade var nú fín en öskraði dálítið á háu tónunum auk þess sem hún fór einfaldlega bara í taugarnar á mér.
24. Finnland. "Lose control." Mér fannst þetta mjög skemmtilegt lag. Átti síðasta sætið ekki skilið! Virkaði samt ekki alveg nógu vel á sviðinu og konurnar rugluðust nokkrum sinnum. Samt mjög skemmtilegt lag :)
25. Spánn. "
La Noche Es Para Mí (The Night Is For Me)." Þarna var of mikið verið að rembast við að gera hið fullkomna eurovision lag sem ætti að höfða til allra. Jú, það var grípandi en bara ekki nógu gott.

Jæja hér eru þau öll!
Að lokum vil ég birta hér lokaniðurstöðuna og minna á
www.eurovision.tv :)

Við sjáumst!
Sunna !

  1. Noregur - 387 stig
  2. Ísland - 218 stig
  3. Aserbaídjan - 207 stig
  4. Tyrkland - 177 stig
  5. Bretland - 173 stig
  6. Eistland - 129 stig
  7. Grikkland - 120 stig
  8. Frakkland - 107 stig
  9. Bosnía & Herzegóvína - 106 stig
  10. Armenía - 92 stig
  11. Rússland - 91 stig
  12. Úkraína - 76 stig
  13. Danmörk - 74 stig
  14. Moldóvía - 69 stig
  15. Portúgal - 57 stig
  16. Ísrael - 53 stig
  17. Albanía - 48 stig
  18. Króatía - 45 stig
  19. Rúmenía - 40 stig
  20. Þýskaland - 35 stig
  21. Svíþjóð - 33 stig
  22. Malta - 31 stig
  23. Litháen - 23 stig
  24. Spánn - 23 stig
  25. Finnland - 22 stig.
 

» 25 hafa sagt sína skoðun

21.03.2009 11:57:17 / Sunna

Góðan daginn!!!!!!!!

Já þið lásuð rétt! Ég ætla að blogga!!!!!!!!!!!!!!! Klappið fyrir mér :D

Ég ætla að byrja á því að koma með nokkrar ástæður fyrir því að ég hef ekki bloggað hérna leeeeeengi. (Harpa og Karen verða bara að koma með sínar ástæður seinna) ;)

Jæja.

1. Ég hef engan tíma! Á virkum dögum er ég bara í bænum að læra allan daginn og svona. Um helgar kem ég heim og þá er ég alltaf að gera eitthvað. Hitta stelpurnar, horfa á sjónvarpið og já, læra jafnvel.

2. Ég á ekki tölvu! Ég er alveg tölvulaus fimm daga vikunnar nema þegar ég fæ að kíkja í tölvuna hjá Hörpu og þegar ég er að vinna verkefni í tölvunum uppi í skóla.

3. Já! Síðast en ekki síst! FACEBOOK! Þessi síða er orðin helsti tímaþjófur landans! Maður sest við tölvuna, opnar netið og fyrsta síðan sem maður skrifar inn er www.facebook.com ef hún er ekki bara upphafssíðan! Maður kemst vel af bara með þessa síðu, enda er hún uppspretta alls kyns afþreyingar. Maður getur tekið próf, keppt við vini sína í landafræðileikjum, orðaleikjum, mínígolfi, keilu, tetris o.fl., sett inn myndir og myndbönd, aflað sér ýmissa upplýsinga, spjallað við vini sína (eða ekki vini sína) og jú, jafnvel bloggað! Maður situr jafnvel við matarborðið og veltir því fyrir sér hvað maður geti skrifað í reitinn "hvað liggur þér á hjarta?" (eða "what's on your mind?" fyrir þá sem eru svo ofurleim að hafa fésbókina á ensku) ;) Takmarkið er þá auðvitað að fá sem flest komment eða "þessum líkar staða þín." Já. Nóg komið af þessu :)

Ýmislegt hef ég gert frá síðasta bloggi! Kannski hefur ein ástæðan fyrir bloggleysi verið sú að ég þurfti að jafna mig svo frá því síðast þar sem ég sagði frá nánast öllu sem gerðist í fyrra! Það var hugsanlega einum of.
Það fyrsta sem mér dettur í hug að segja er jú, það gengur vel í skólanum. Stærðfræðin gengur mun betur en í fyrra, fékk meira að segja 9,7 í einu prófinu! Við áttum að lesa uppáhalds bókina mína "Viltu vinna milljarð" heima og á föstudaginn var síðan skriflegt verkefni/próf upp úr henni. Þetta voru þrjár spurningar og fengum við fjórar línustrikaðar blaðsíður til að skrifa svörin. Ég var lengst inni, enda notaði ég allt plássið og var alveg handlama eftir á! Það minnir mig á það að um daginn vaknaði ég við vekjaraklukkuna í símanum en ég var með svo mikinn náladofa í hendinni að ég gat ekki reist mig við til að slökkva á henni! Það tók mig allavega heillangan tíma. :)

Ég er að hugsa um að skrifa nokkra punkta!

·          Ég er að fara að taka píanómiðpróf á mánudaginn :)

·         Svo tek ég miðpróf í tónfræðum þann 24. apríl.

·         Við Harpa H. létum draum okkar rætast um daginn! Við löbbuðum upp í súper og keyptum okkur skúffuköku með karamellukremi og lakkrískurli! Mmmmm... Það var himneskt :haha:

·         Við Harpa og Karen horfðum á Slumdog Millionaire í gær:D Hún var mjög góð:) Ekkert toppar bókina þó!

·         Harpa, Karen og Júlía skipulögðu ferð fyrir KA-stelpurnar til Grenivíkur! Þær fara upp á Kaldbak og gista í skólanum:) Ég vona að þær skemmti sér vel og sjái hvað Grenivík er yndislegur staður ;)

·         Söngkeppni MA var 4. mars minnir mig. Það var mjög gaman! Þar voru fullt af flottum atriðum, hún var milljón sinnum betri en í fyrra! Sigurlagið var svo ekki af verri endanum, lagið Feeling good, sem m.a. Muse hefur gefið út;)

·         Olla er fyrir aftan mig að hoppa á Disney bókum! (Þá er ég ekki að tala um móður mína)

·         Vegna fjölda stærðfræðiárekstra missi ég alltaf af öðrum íþróttatímanum í skólanum. Til að bæta þann tíma upp þarf ég að fara í morgunsund klukkan 7 annan hvern föstudag! Það er rosalegt! Það er samt mun auðveldara en maður gæti haldið að vakna klukkan sex á morgnana ;)

·         Mér finnst reyndar miklu auðveldara að vakna á virkum dögum klukkan 07:15 heldur en klukkan 10:15 um helgar.

·         Tálkni Tálknafjall!

·         Smjörið mitt í bænum myglaði í vikunni!

·         Ég er að hugsa um að fá mér mjólkurgraut.

·          Þetta er orðið ágætt.

Verst að enginn á eftir að lesa þetta, allir eru örugglega hættir að skoða síðuna í von um blogg. En hey! Ég segi bara að ég hafi bloggað á facebook! Þá sjá það allir! :lol:

Ein pæling að lokum. (Sem ég er btw (afsakið orðbragðið) búin að setja á facebook!)

Hefur það slæm áhrif á líkamsstarfssemina ef sköflungarnir eru staurblindir?

Danke schön!

SUNNA


» 34 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 17:39:47 / Sunna

Jújú.. myndband dagsins ;)

Ble.

Það er skóli á morgun! :o

Ég skora á alla að lesa bloggið hér fyrir neðan!

Ég skora á alla að kjósa í skoðanakönnuninni!

Ég skora á alla að horfa á þetta myndband!

Takk takk.

Sunna :)




» 31 hafa sagt sína skoðun

02.01.2009 14:45:54 / Sunna

JÁ SÆLL!

Ég veit ekki af hverju þessir broskallar koma þarna en jæja..

Góðan daginn og gleðilegt nýtt ár allir saman! />

Ég veit ekki hvernig það mun ganga hjá mér en ég ætla að reyna að skrifa einhvern pistil um árið sem var að líða, 2008. />

>

/>Janúar! />

>

Minni mitt er ekki mjög glöggt um þessar mundir! Janúar var eflaust bara fínn mánuður, en samkvæmt bloggum þann mánuðinn var aðaláhyggjuefnið stór ritgerð í samfélagsfræði, þar sem maður átti að skrifa um eitthvert ákveðið land. Strax í janúar fór maður líka að hugsa um samræmdu prófin, ég ákvað hvaða próf ég ætlaði að taka og á hvaða braut í hvaða skóla ég ætlaði. En eins og allir vita núna er það MA og náttúrufræðibraut;) Svo var líka verkfall handritshöfunda í þessum mánuði, það var afskaplega leiðinlegt! Enda sjónvarp mikill nauðsynjahlutur;) Neinei, maður lifði þetta nú alveg af :) />

>

Febrúar! />

>

Mánuðurinn byrjaði með látum! Við Sköflungarnir kepptum í söngkeppni Samfés á Húsavík þann fyrsta febrúar. Við sungum lagið, Oh happy day, Karen söng og við Harpa vorum í bakröddum.  Það var mjöööög gaman, við "fíluðum" okkur mjög vel;) Að lokum voru það fimm atriði sem komust áfram í úrslitin í Reykjavík. Þrjú bestu atriðin, athyglisverðasta atriðið og besta framkoman. Og til að gera langa sögu stutta hlutum við verðlaun fyrir bestu framkomuna og komumst áfram!!!:D Þetta var rosalegt;) />

Svo komu bolludagur, sprengidagur og öskudagur með öllu sínu fylgidrasli og ég varð lasin, í eina skipti á árinu! Félagsmiðstöðin fór áfram á kostum (veit ekki hvort má segja svona en jæja) og einhvern tímann í febrúar var svokallað survivor í félagsmiðstöð;) Það var mikið stuð;)
Þessi nánast óendanlegu Laugardagslög ENDUÐU! Eftir áhorf á alls konar lögum, slæmum, góðum, og já, aðallega slæmum fóru úrslitin fram. Flestir spáðu Ho ho ho we say hey hey hey sigri. Mér fannst þetta mjög töff lag fyrst, en svo fékk ég bara ógeð og fattaði að þetta var algjört rugl. Lágmark að kunna að syngja allavega! En ég hélt með Eurobandinu með this is my life, enda bestu söngvararnir þar á ferð;) Margir segja að söngvararnir séu ekki það sem þetta snýst um, en hverjum finnst gaman að hlusta á gott lag með lélegum söngvara? Ekki mér:) En að sjálfsögðu vann Eurobandið! Þá var Sunna glöð:) />

Svo held ég að Skólahreysti hafi verið í þessum mánuði! Grenivíkurskóli fór í fyrsta skipti með lið en í því hrausta liði voru Harpa, Karen, Kári og Anton;) Þau stóðu sig bara býsna vel, þó við hefðum ekki lent neitt ofarlega;) />

>

Mars! />

>

Í byrjun mars var SAMFÉS! Við á Grenivík erum svo sniðug að við lengjum ferðina á Samfés og gerum hana að námsferð og skemmtiferð í leiðinni;) Við lögðum því af stað á fimmtudegi eftir skóla og komum okkur fyrir í Bústöðum, félagsmiðstöðinni þar sem við gistum;) />

Á föstudeginum gerðum við ýmislegt eins og heimsækja Morgunblaðið, Rúv, þar sem við sáum Spaugstofukarlana;) , skoðuðum Vatnsendaskóla og fórum í ADRENALÍNGARÐINN! Það var algjör snilld! Við klifruðum upp klifurvegg og klifruðum upp ellefu metra háan staur þar sem sumir panikkuðu (*Hóst Sunna Hóst*). Mesta snilldin var samt rólan! Þar var maður togaður upp í 12 metra hæð á milli tveggja staura, svo togaði maður í spotta og féll niður og rólaði hreinlega á milli stauranna! Þetta var bara eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert! Ofurhugar hópsins eftir þessa ferð held ég að verði að teljast Harpa og Zak;) Þau voru þau einu held ég sem "meikuðu" allt;) />

Eftir þetta fórum við í sund og svo beinustu leið á ballið;) Þar var mikið stuð og þeir sem komu fram voru t.d. Páll Óskar, Bubbi Morthens og Á móti sól;) />

Laugardagurinn var svo góður þar sem við Sköflungarnir byrjuðum á því að fara á æfingu í Laugardalshöllinni fyrir kvöldið;) (þar sem við áttum að syngja Oh happy day ef þið skylduð hafa gleymt því;)) Það gekk bara vel. Söngvakeppnin sjálf var svo seinna um daginn. Við gátum ekkert horft á keppnina því við þurftum að bíða í "græna herberginu" allan tímann. Atriðið okkar heppnaðist bara vel og ég er ekki frá því að Karen hafi bara aldrei liðið svona vel á ævi sinni! Hún hoppaði á sviðinu og alles:haha: En jæja, ekki unnum við, hehe, heldur vann stelpa frá Mosfellsbæ með lagið fever;) />

Um kvöldið var svo bíó og eitthvað skemmtilegt. />

Ég man ekkert hvað gerðist á sunnudaginn nema þá fórum við heim:) />

Vorskemmtunin var snemma þetta árið en hún var algjör snilld;) Við 9.-10. bekkur vorum með einhvers konar viðtalsþátt þar sem Sigga Sverris, leikin af Júlíu, fékk til sín alls konar gesti. Steina húsvörð (Karen), Godzillu (Harpa), gamlan karl (ég), stubb (Anton), sól (Elín), Bubba Morthens (Kári) og fleiri :) Þetta var mjög gaman, eins gott, enda síðasta vorskemmtunin mín:( />

Svo var bara viðstöðulaust páskafrí og undirbúningur fyrir Samræmdu prófin hófst! />

>

Apríl! />

>

Við Sköflungarnir + Júlía byrjuðum að æfa með KA! Við sjáum sko ekki eftir því í dag;) Fyrstu vikuna sem við æfðum var venjuleg æfing, æfingaleikur og æfing þar sem Margrét Lára kom í heimsókn! />

Svo var dansvika í skólanum þar sem við lærðum meðal annars mjög töff freestyle dans;)
Ég meiddist eftir að Júlía tæklaði mig;) og fékk sýkingu í handlegginn! Ekki gott. En það lagaðist eins og allt:) />

>

Maí! />

>

Við í tíunda bekk fórum í útskriftarmyndatöku;) Nú er komin mynd af MÉR á vegginn! Vá! />

Svo var auðvitað sumarbústaðaferð sem var algjör snilld;) Við skemmtum okkur vel og okkur tókst meira að segja að nýta náttúrufræðiþekkingu okkar og nota vogarstöng, sem ég tel bara helvíti góðan árangur!;) />

Svo var hinn árlegi RUNÓLFUR;) Þar voru öll skemmtiatriði til heiðurs okkur tíundu bekkingum;) Þar var mikið hlegið og skemmt sér;) Spurningakeppni, appelsínuboðhlaup, nælukeppni, spádómur og saga:D Þvílík kveðjuathöfn;) />

Síðasta þemavikan gekk í garð. Við fræddumst um gamla bæinn í Laufási og bara gamla tímann yfir höfuð. />

Ég tók samræmdu prófin og mér gekk mjög vel! 8,5 í ensku og náttúrufræði, 9 í íslensku og 9,5 í stærðfræði og dönsku!:) />

Við tók svo sjálf útskriftin. Ég var búin með Grenivíkurskóla! Það var mjög skrýtið, ég varð glöð yfir þessum áfanga en jafnframt döpur þegar ég hugsaði til þess að í lok ágúst mundi ég ekki skella á mig skólatöskunni og byrja nýtt skólaár eins og ég hafði gert í tíu ár. Hinsvegar þyrfti ég að flytja í bæinn og fara í risastóran framhaldsskóla! Úffí púffí. />

>

Júní! />

>

Ég byrjaði að vinna hjá hreppnum. Fyrst um sinn vann ég alltaf frá hálf átta til tvö en einhvern veginn þróaðist það í að vinna alveg til fjögur, svona oftast allavega. Eins og allt sumarið skipti fótboltinn miklu máli, við fórum á KA æfingar nokkrum sinnum í viku og svo voru annað slagið leikir í Íslandsmótinu. Við fórum tvisvar til Reykjavíkur að keppa, sem var mjög gaman, stelpurnar voru mjög fínar og leikirnir voru misskemmtilegir;) Allra besti leikurinn var þó þegar við unnum Víking 8-0! Það var algjör snilld;) Svo ég ljúki mér nú bara af með fótboltann, ég man nefnilega ekkert hvað gerðist í hvaða mánuði, þá enduðum við í næstsíðasta sæti í riðlinum okkar, á eftir, ÍA, HK, Stjörnunni og Völsungi og á undan Víkingi. Við unnum tvo, gerðum tvö jafntefli og töpuðum sex leikjum. Við hefðum sko alveg getað lent ofar en svona er fótboltinn bara. Ég veit allavega að nú á sko að taka á því í þriðja flokki! Ég er nefnilega komin upp í annan flokk en Harpa, Karen og Júlía halda ótrauðar áfram og er ég örugg um að þær muni standa sig vel í sumar;) />

Sumarið var stundum svolítið strembið, stundum var ég að slá með sláttuvél frá hálf átta til fjögur, dreif mig svo heim, skipti um föt og brunaði til Akureyrar á fótboltaæfingu. Þá var maður orðinn þreyttur, en allt þess virði:) />

>

Júlí! />

>

Í júlí kepptum við á eina mótinu með Magna. Það var Landsbankamótið á Sauðárkróki þar sem við kepptum í þriðja flokki stelpna. Fimmti flokkur keppti líka. Í þriðja flokks liðinu voru; Ég, Harpa, Karen, Júlía, Auður, Jenný og Heiða;) Við vorum bara sjö en til öryggis stóðu á hliðarlínunni hjá okkur Guðbjörg og Agnes sem þurftu reyndar aldrei að koma inná;) Okkur gekk bara vel á þessu móti, spiluð var tvöföld umferð á móti Neista H, Tindastóli 1, Tindastóli 2 og KS. Í fyrri umferðinni unnum við Neista, gerðum jafntefli við Tindastól 2 og KS og töpuðum á móti Tindastól 1. Í seinni umferðinni unnum við Tindastól 1 og 2 ;) (snilldar leikir þar á ferð) en töpuðum á móti KS og Neista, sem ég vil helst gleyma. En niðurstaðan var 3.sæti á eftir Tindastólsliðunum, þó svo að við hefðum unnið þau bæði. Við fengum nettan bikar og verðlaunapeninga;) Þetta var mjög jöfn keppni og hefði getað farið hvernig sem er;) ja svona nánast:) />

Í lok júlí var svo aðalmálið. Ég fór með Þorsteini og Gerðu til Danmerkur! Við fórum til þess að fara á Iron Maiden tónleika;) Við vorum svona á síðasta sjens með þessa ferð, því þarna var danska krónan komin upp í 17! Stuttu síðar gerðist það sem gerðist, ja það vita það allir. En þessi ferð var algjör snilld;) Við gistum hjá föðursystur Gerðu í Horsens, en þar voru einmitt tónleikarnir. Ég nenni ekki að segja mikið um þessa ferð, þið getið lesið um hana í “gamalt blogg” hér til hægri undir júlí 2008;) Allavega voru tónleikarnir snilld, þessir gömlu snillingar voru í fantastuði og söngurinn frábær;) />

>

Ágúst! />

>

Mánuður afmælanna! Já, svona annar hver maður í fjölskyldunni minni á afmæli í ágúst. Og fleiri, eins og Karen, Elín og Bruce Dickinson! />

En helsta í þessum mánuði var að ég byrjaði að vinna í leikskólanum:) Það var góð tilbreyting frá rauðum sláttuvélum;) Krakkarnir þarna eru algjörir snillingar og það var bara mikið stuð að vinna þarna. />

Já eins og ég sagði fór mánuðurinn að mestu leyti í afmæli og að sjálfsögðu fótbolta;) />

Flestir skólar landsins byrjuðu, en að sjálfsögðu ekki MA, hann byrjaði ekki fyrr en í september! />

Karen átti afmæli og fórum við á Dark knight í bíó í tilefni af því;) />

>

September! />

>

Ég vann mína síðustu viku í leikskólanum:S />

12. september byrjaði svo loksins skólinn með tilheyrandi busun og svoleiðis;) Busunin var mjög spes, frekar ömurleg en samt skemmtileg;) Mér fannst t.d. línurnar upp við veggina ömurlegar en ratleikurinn úti mjög skemmtilegur:) />

Skólinn byrjaði og var svo ekkert eins voðalegur og ég hélt. Eiginlega vandist ég því bara strax að vera þarna! MA er líka svo heimilislegur og bara frábær skóli, finnst mér:) Ég kynntist bekknum mínum, 1.H, og eignaðist vini, þá aðallega þrjár stelpur, Ke, Hrefna og Ólöf;) Þær eru æði;* />

Ég flutti auðvitað líka inn á vistina, kynntist almennilega mínum frábæra herbergisfélaga, Hörpu (gat náttúrulega ekki fengið neitt framandi nafn;)) og líkar bara vel þarna á vistinni;) />

Afi minn, pabbi pabba, hefði orðið 100 ára í þessum mánuði og því var haldið svona smá ættarmót á Grenivík, þar sem afkomendur afa hittust. Það var mjög fínt:) />

>

Október! />

>

Einhvern veginn man ég ekkert merkilegt úr þessum mánuði. Skólinn hélt bara áfram, nokkuð strembið, en alveg þess virði:) Fullt af heimalærdómi en ekkert sem maður ræður ekki við;) Fínar einkunnir og lífið er frábært. Nema hvað, ég fæ ekki að sjá Sköflungana mína nema um helgar :( />

Ég var ekki í fótbolta:( en ég var og er að æfa á píanó á fullu og fer einu sinni í viku niður í tónlistarskóla, sem er góður göngutúr, í spilatíma. Auk þess var og er ég í hljómfræði og tónheyrn einu sinni í viku, einnig niðri í tónlistarskóla. Ég hef svo fasta æfingatíma í skólanum á flygilinn þar. />

Já! Og Karen Björg fékk gleraugu;) Sjónskekkja, sjónskekkja, sjónskekkja...... :) />

>

Nóvember! />

>

Það helsta í þessum mánuði var að ég átti afmæli:D Og Harpa auðvitað líka;) Afmælisdagurinn minn var bara fínn, það var bara venjulegur skóladagur, stærðfræðipróf og fleira skemmtilegt hehe;) En um kvöldið buðu Anna Birna, Þorsteinn og Gerða mér í pizzu heim til Önnu Birnu:) Við pöntuðum dýrindis pizzu frá Dominos og mamma og pabbi komu líka í heimsókn:) Daginn eftir, 19. nóvember semsagt, komu Harpa og Karen í heimsókn í bæinn og við fórum saman á Greifann, þar sem við Harpa fengum okkar langþráða afmælisís!!!:D Við átum hann auðvitað með bestu lyst;) Svo héldum við Harpa smá afmælispartý heima á Grenivík sem var auðvitað mikið stuð;) />

Svo var auðvitað árshátíð MA 28. nóvember;) Það var mjög gaman, fín atriði og góður matur:) Eftir á var að sjálfsögðu ball, þar sem hljómsveitin Land og synir spilaði;) Það besta var, að Harpa og Karen komu á ballið! Við dönsuðum þar saman og svo gistu þær á vistinni hjá mér:D Mjög gaman:) />

>

Desember! />

>

Ja... eins og flestir vita voru jólin í desember og ég komst í mitt langþráða jólafrí. Það var mjög ljúft:) En jólin voru fín, Þorsteinn var í fyrsta skipti ekki í Melgötu 10 á aðfangadagskvöld og var á Ólafsfirði með Gerðu. Hins vegar komu Vala, Kristinn og Eygló hingað og voru hjá okkur frá 22. til 28. desember:) Eygló er algjör snillingur;) Ég fékk margar góðar gjafir og vil ég bara þakka kærlega fyrir þær:) Áramótin voru svo góð, fjölmenni var hér í M10 eins og vanalega, hvorki meira né minna en 23 manneskjur! Sprengjurnar voru flottar og allt gekk vel, fyrir utan eitt óhapp. />

>

En nú er komið árið 2009! Já, eins og þið sjáið þá er þetta virkilega langt blogg hjá mér... Ég tek bara ofan fyrir ykkur ef þið nenntuð að lesa það allt! Fyrir ofan skrifaði ég að ég ætlaði að reyna að skrifa eitthvað, en sannleikurinn er sá að þegar ég byrja að segja svona frá get ég hreinlega ekki stoppað;) En ég vil bara þakka öllum sem ég þekki fyrir árið sem var að líða, allar góðu stundirnar og fjörið! />

>

TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK!!! />

>

>

Sunna is out! />

>


» 26 hafa sagt sína skoðun

30.12.2008 16:08:25 / Sunna

30.12.08

Jájá. Hér sit ég og reyni að læra, eins og flestallir MA-ingar sem ég þekki. Ekki gaman...
Ég er ekkert að stressa mig yfir prófunum, er bara búin að læra í stærðfræði, náttúrufræði og aðeins dönsku... enda held ég að ég þurfi ekki að kvíða neinu.. eða hvað? :o Ég er svo að fara með sköflungunum mínum í bíó á eftir  á Yes-man :D Stuð, bara stuð, bara stuð... Svo er síðasti dagur ársins á morgun, spurning um að koma með áramótapistil ;)
Myndband dagsins er til heiðurs lærandi Ma-ingum! Prófin eru ekki lífið, slakið á og njótið þessa myndbands! :D

Sunna kveður að sinni :)







» 18 hafa sagt sína skoðun

29.12.2008 20:38:06 / Sunna

Myndband dagsins ;)

Hver er flottastur? Halló! :D

Relax and enjoy... ;)






» 22 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 15:57:30 / Sunna

Jólajólajóla

Jæja gott fólk! Við vitum að það eru tveir klukkutímar og tvær mínútur í jólin en samt sem áður segjum við...


GLEÐILEG JÓL!

Hafiði það gott um jólin í faðmi fjölskyldunnar og étiði yfir ykkur af smákökum :)


Ástarkveðjur,

SKÖFLUNGARNIR :D


» 20 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 19:00:55 / Sunna

Ætli það ekki...

Vó vó vó! Hér sit ég, fyrir framan tölvuna í Melgötu 10 (sem er á síðasta snúningi) og hef ákveðið að blogga sökum kvartana bloggþyrstra aðdáenda;)
Það er mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast! Svo mikið að ég man það ekki einu sinni :P
Ég byrja bara á því sem ég man.
Þann 28. nóvember var árshátíð MA :) Hátíðin fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri. Höllin var frábærlega skreytt og allt var mjög flott og grand;) Maturinn var mjög góður og skemmtiatriðin fín:) Þegar það var búið var ball:) Það var mjög skemmtilegt, sérstaklega fyrir þá staðreynd að Harpa og Karen komu á það!:D Þær gistu svo á vistinni með mér:D Við skemmtum okkur mjög vel og stigum trylltan dans undir fögrum tónum hljómsveitarinnar Lands og sona;) Að sjálfsögðu var ég ekki bara með H&K heldur var ég einnig með mínum yndislegu bekkjarsystrum, Ke (Chanee), Hrefnu og Ólöfu:) Þær bjarga mér frá algjöru þunglyndi á virkum dögum hehe;) Eftir mikinn dans og mikið stuð var 1.H kallaður í bekkjarmyndatöku klukkan hálf þrjú um nóttina! Þrátt fyrir það var bekkurinn ferskur og hress í myndatökunni;)
Eftir ballið þurfti 1.bekkur (fyrir utan þá sem voru í einhverjum atriðum eða skreytingarnefnd) að laga til:( Harpa og Karen fóru heim í herbergið mitt á vistinni og ég lagaði til ásamt Hrefnu og fleira fólki. Ke og Ólöf fengu að fara beint heim því þær voru í atriði:evil: Við Hrefna létum okkur hafa það og puðuðum þarna, þar sem okkur var sagt að ef við færum myndum við fá þrefalt skróp. Þegar klukkan var að nálgast fimm tilkynnti eflaust ágætis drengur okkur það að það yrði ekki tekinn niður mæting! Hann hafði varla sleppt orðinu þegar einhver strákur stökk upp frá verki sínu og sprettaði eins hratt og hann gat beinustu leið út!:haha: Við Hrefna urðum að sjálfsögðu svekktar, týndum upp nokkra pappírsstrimla í viðbót og fórum svo. (Að sjálfsögðu var búið að leyfa okkur það). Ég fór inn á herbergi 2106 og sofnaði þar eins og steinn.

Að öðru. Eins og flestir vita þá nálgast jólin brátt:) Bara ein vika eftir í skólanum og svo jólafrííííííí!:D Ég er farin að hlakka til, enda gott að vera heima og þurfa ekki að vakna snemma hvern einasta dag;) Ja, fyrir utan eitt. Ég þarf að læra í jólafríinu. Svo vill nefnilega til að ég er í Menntaskólanum á Akureyri, sem er skóli mikilla hefða. Ein þessara hefða er að hafa haustannarprófin í janúar, strax eftir jólafrí. Jújú, mikið rétt. Reyndar eru venjulegir kennsludagar 5. og 6. janúar og svo upplestrarfrí 7. en svo koma viðstöðulaus próf. Til gamans, svona svo þið getið vorkennt mér, þá ætla ég að setja inn próftöfluna mína;) Ekki misskilja mig samt, mér finnst alls ekki leiðinlegt í prófavikum! Reyndar hefur mér alltaf fundist þær nokkuð skemmtilegar, en nú er heldur meiri alvara en í grunnskóla. Jæja, hér kemur þetta.

Fimmtudagur, 8. janúar: Íslenska 102
Föstudagur, 9. janúar: Danska 102
-----------Helgi-------------------
Mánudagur, 12. janúar: Stærðfræði 303 lesin
Þriðjudagur, 13. janúar: Stærðfæði 303 ólesin
Miðvikudagur, 14. janúar: Þýska 102
Fimmtudagur, 15. janúar: Íþróttir 101
Föstudagur, 16. janúar: Enska 102
------------Helgi------------------
Mánudagur, 19. janúar: Náttúrufræði 113


Jújú, þetta er skemmtilegt. Bekkurinn minn er í stærðfræðiprófi 12. janúar og er svo í engu prófi daginn eftir. Ég er komin lengra í stærðfræði þar sem eru tvö próf í sama áfanganum svo að ég fæ ekkert frí! Bekkurinn sem ég fer í stærðfræðiprófið með fær líka frí daginn eftir stærðfræðiprófið en ekki ég... neineinei. Í rauninni eru enginn bekkur í prófi alla dagana "straight", en ég er svo svaðalega óheppin að fá ekkert frí. Vorkennið mér! Neinei, mér er svosem skítsama. Ég hlakka bara til að komast í jólafrí:)

Helgin er búin að vera góð. Í gær fórum við "stórfjölskyldan" í Melgötu 10 í bæinn (Akureyri fyrir þá sem vita það ekki) til að versla jólagjafir. Þvílík traffík sem var þarna á Glerártorgi! Vááá! En jæja, þetta var samt fínt. Við hittum Hörpu og Karen og fjölskyldur og fleira fólk. Ég náði að kaupa allar gjafir sem ég átti eftir nema handa mömmu og pabba og meira að segja ís í þokkabót! Mamma fékk brjálæðiskast, keypti sér bol án umhugsunar og lét pabba kaupa handa sér unglingapeysu;) Ekki nóg með það, heldur settist hún niður og fékk sér kaffi! Þeir sem þekkja mömmu skilja hvað ég er að meina:) Dagurinn endaði auðvitað á nammiferð í Hagkaup:)
Í dag var svo fínn dagur. Hápunktarnir voru: Páll Óskar, bobb og aðventukvöld. Jú og ég var með spöng!

Þetta er langt blogg. Ég vona að einhver lesi það og ég vona að einhver kommenti, bara svona svo ég viti að ég skrifaði það ekki til einskis :) Ef þið hafið eitthvað út á þennan texta að setja, þá endilega látið vita!

Annars kveð ég að sinni!

Sunna.

Ég nenni ekki að setja inn myndir... kannski seinna :P Híhí (krúttlegi broskall)

BLESS!

P.S. Við Ke erum bestu hommar heims! XD


» 24 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 23:47:18 / Sunna

The truth about love!

Komiði sæl og blessuð.. Karen heiti ég og ætla ekki að blogga um neitt

Vikan var ágæt, skólinn var ekki fyrr en á miðvikudaginn þannig að letin gældi við mig á þriðjudaginn og mánudaginn... yeah right! :$ ég þrufti að passa úr því að mamma mín er kennarinn minn og þrufti að vinna uppi í skóla. Svona er þetta mikill galli!:whut: En á miðvikudaginn var bara venjuleg félagsmiðstöð og við héldum með leikritið okkar þar sem frá var horfið og verður frumsýnt 2009. :haha: Ég segi ekkert meira. Á fimmtudaginn, ég man ekkert sem ég gerði á fimmtudaginn nema að ég fór í ræktina og hljóp 2,2 kílómetra (Y). Svo í dag, föstudagur er ég búin að læra í landafræði um ósonlagið og allt sem tilheyrir því og fara í bæjinn og velja afmælisgjöf handa henni Hörpu minni. Svo þegar við komum heim fengum við heima bakaða pizzu að hætti pabba míns og svo kom Harpa og við borðuðum draum og horfðum á wipeout!!! Það er SNILDAR þáttur,8) vá hvað það er fyndið að sjá þetta fólk renna á rassgatið! eða andlitið og svo detta ofan í drullu, verða kýld í andlitið og renna á gúmmí hring í rjóma og skjótast út í vatn ;'D. Við ákváðum svo að kíkka á doktor.is og kíkka á vandamál unglinganna og þau eru nú misjöfn. Allt frá áhyggjum af túrverkjum upp í hvernig á að ná vindli út úr rassagatinu á sér!! XD
Allt í einu komu Nonni og Gísli Gunnar í heimsókn og þá ákvað mamma að fara á James Bond og skilja mig eftir með köllunum.:(;) Ég þakka fyrir. Já og btw þeir eru hér ennþá. En það er bara gaman að hlusta á gamlar reynslusögur um frystitogara og tónleika. Ég og
Harpa ákváðu þá að fara inn í herbergi með tölvuna og fletta upp the REC sem vinkona frænku minnar mældi með.:lol: Við hrofðum á treilerinn á youtube og okkur leist ekkert á hann. Slökkviliðsmenn sem fara inní hálfhrunda byggingu að reyna að bjarga stökkbreyttu fólk sem vill ekert annað en drepa þá!! (Y) Þetta er líka í svona Cloverfield gæðum. En við ákváðum svo að fletta upp "The prom night" og horfðum á fyrstu 3 partana af 8 og hún er ekkert smá spennandi og skemmtileg! En þá þurfti Harpa að fara heim. Svo núna sit ég hérna inni í stofu og blogga um vikuna mína. Sem var reyndar ekkert það skemmtileg. Reyndar langar mig svoltið í jarðaberjasúrmjólk núna.:p Og ég var að heyra enn einn bjórinn opnaðan ;). Á morgun förum ég og Harpa og Júlía í bæjinn á æfingu og vondandi get ég keypt nammi í leiðinni. Á  þriðjudaginn á svo Sunna mín afmæli ;* sem er btw í Reykjavík núna :O. OOOOOg á miðvikudaginn á svo Harpa mín afmæli ;*. En við ætlum að fagna því veglega með því að hittast á miðvikudaginn og gera eitthvað skemmtilegt saman. En það verður allavega innifalin ís í þessu öllusaman. Hehe. En úrþví að það er æfing á morgun getum við Harpa og fleiri farið í Body Jam eins og við ætluðum en við ætlum næstu helgi. Það er neflega frítt í body jam á laugardögum. :D Endilega fleiri að koma! Þetta er einhverstaðar í dagskránni. En nú held ég að ætli að fara að hætta þessu en endilega kommenta. ;)

bæbæ
KAREN BJÖRG 8)

» 30 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 21:42:18 / Sunna

Jæææææææææææja!

Já afsakið. Ég ætlaði að blogga síðustu helgi... og líka næstsíðustu helgi... Ég bara kom því ekki í verk! En jæja,  nú hef ég loks ákveðið að blogga ykkur til mikillar ánægju :) Og fyrst ég er dálítið löt núna þá er ég að pæla í að hafa punktablogg! Eru ekki allir til í það? Jújú, það held ég. Þá kemur það!

  • Það gengur vel í skólanum, bara svo ég komi því frá!
  • Núna á ég gönguskó þannig að ég þarf ekki að labba á stígvélum í tónlistarskólann!
  • Lífið á vistinni er andskoti fínt ;)
  • Við Harpa fórum út í fótbolta fyrir dálitlu síðan. Kemur þá ekki einhver strákur að okkur og skorar á okkur í fótbolta, við á móti honum! Við tökum áskorunninni og spurjum hvað hann sé gamall. Í ljós kemur að hann er fæddur árið 1988, semsagt tvítugur fyrir þá sem eru ekki vel að sér í stærðfræðinni! Við að sjálfsögðu rústuðum honum;)
  • Ég geri ekkert svakalega mikið um daginn nema vera í skólanum, læra og spila á píanóið... Ég er nú samt búin að fara á kaffihús, niður á Glerártorg og á Bryggjuna, sem er nýr pizzastaður;)
  • Að sjálfsögðu er ég búin að kynnast fólki... ekki annað hægt í MA! :D

Hópmynd af 1. bekk H
Þetta mun vera bekkurinn minn!!!
Og ykkur til skemmtunar ætla ég að segja hvað allir heita! Jeiiiij:)
Efri röð frá vinstri: Magga, Karen Eva, Steini, Guðmundur, Tómas, Ólöf, Brynjar, Karen og Almar.
Neðri röð frá vinstri: Hilma, Sigga, Dóra, Ísak, Orri, Stefán, Arnór, Jóhann Helgi, Siggi, Aron og Hrefna.
Þessar tvær fyrir framan: Sunna og Chanee!

Þá vitið þið það!
  • Endilega skoðið www.ma.is ef þið hafið ekkert að gera.
  • Stelpurnar í 10. bekk á Grens fóru um daginn að skoða MA og VMA. Karen og Harpa ætla alveg ábyggilega í MA en ég er ekki alveg viss um hinar. Vona bara að sem flestir komi í MA til mín:) Ég mæli allavega með skólanum!
  • Nú eru loksins allir Sköflungarnir komnir með gleraugu!!! Karen Björg var loks að bætast í hópinn með sína svakalegu sjónskekkju;)
  • Við gistum saman í gær... það var svakalega skemmtilegt að vanda;)
  • Íslenska kvennalandsliðið er komið á EM! Það er frábær árangur hjá þeim:) Ég er bara spennt að fylgjast með þeim næsta sumar:)
  • Svo ég tali nú meira um skólann... Djöfull er gaman í íþróttum! Ég held mér hafi aldrei fundist svona gaman í bandý og körfubolta eins og í íþróttatímunum í MA! Stelpurnar spiluðu nefnilega sér og strákarnir sér. Það er mikill munur;)
  • Við erum búin að fara í nokkur próf, þar á meðal nokkur íþróttapróf! Ég fékk 9,8 í bíb-testi, 9,5 í armbeygjuprófi, 9 í sippuprófi, 7 í langstökksprófi og 7 í liðleikaprófi! Uss....
  • Ég er búin að fá fleiri einkunnir, þar má nefna 9,8 í þýskuprófi og 9,5-10 fyrir íslenskuritgerð:) Þannig að ég virðist bara á nokkuð góðu róli með þetta:)
  • Yfir höfuð finnst mér bara mjög gaman í skólanum:) Ég elska líka bara skólahúsið sjálft, það er opið til tíu á kvöldin og það er ekkert smá gott að geta bara labbað nokkur skref í skólann, hafa þar aðgang að bókasafni, tölvu, píanói og aðstöðu til að læra:) Þetta er frábært:)
  • Það er löng helgi hjá mér næst.. frí á fimmtudag og föstudag sem er frábært:) Það er alltaf jafn gaman að koma heim:)
  • En jæja, mér sýnist ég vera að missa af eldgömlum þætti af ER!
  • Við sjáumst!
  • Suuuuuuuuuuunnnnnnnna!



» 28 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 22:38:51 / Sunna

Já gott fólk ég er ólétt!!....... af matarbarni

Jæja mig langaði að versla um helgina og ákvað að skella mér með ömmu, afa og Löllu til borgarinnar! Ég fór á fimmtudegi, afi keyrði og ég og Lölla sátum afturí. Svo skiptum við í Varmahlíðinni þannig að ég og Lölla fórum fram í og gömlu settust afturí og fengu sér nokkra Kalda ;). Lölla skildi við okkur í Borgarnesinu og fór til Hvanneyrar að hitta Helgu sína og Baddi náði í okkur því Lölla tók bílinn. Hann keyrði svo með okkur í Kópavoginn þar sem hann býr í glæsilegri íbúð. Baddi pantaði Rizzo pizzur og bauð Vídda, Siggu og Jónínu vinkonu í mat. Það voru þrjár gerðir af pizzum:

Ein með öllu

Ein með skinku, osti, sveppum og ananas

Og ein með osti, aukaosti og beikoni (sem ég mæli eindregið með) ;P

 

Ég át mig full sadda. Það var farið að snjóa og fljúgandi hálka á götunum þetta kvöld og ég og Baddi sáum mann sem var að fara upp brekku á vespu og hann gerið ekkert nema renna til hliðar og afturábak, þegar hann var hálfnaður með brekkuna var annar maður sem ætlaði að skokka upp hana og hann náði vespu kallinum sem var í tómu tjóni og fór framm úr honum!! :’D. Svo fórum við að koma okkur fyrir og amma og afi sváfu inni í Badda herbergi og Baddi svaf á dýnu og Víddi og Sigga ætluðu að redda mér rúmi. Víddi kom með tösku! Svo sniðuga sem maður bara rennir í sundur, stingur í samband og ýtir á hnapp og þá blæst út svona snildarlega flott rúmm með fótum og læti!!!!!  Og ég svaf þar í svefnpoka J. Svo daginn eftir fóru ég og amma og afi að versla!!! (Y) við byrjuðum í Zöru og þar keypti ég mér tvennar gallabuxur og tvær gollur. Amma fann aðrar gallabuxurnar sem voru með hlébarðamunstri og fanst þær svo flottar að hún ákvað að kaupa þær handa mér!!! Afi stóð bara hjá og hélt á töskum. Svo komu Jóhanna og Baddý og við fórum og verlsuðum út um allt. Við sáum líka Benna trommara (sleeeef), pulsu og rjóma næturvakta kallinn og svo var Ragnheiður Sara að afgreiða mig á Subway! Svo fór Baddý og ég og Hanna fórum í Blend og þar gerðist mikill skandall sem við skulum ekki ræða hér XD, Jóhanna þú veist hvað ég er að tala um X’D. Svo fórum við í Hagkaup til að kaupa eitthvað í matinn. Svo skemmtilega vildi til að það voru ítalskir dagar í Hagkaup og við röltum um og fengum að smakka allskyns pasta og brauð. En Hanna ætlaði að baka pizzu en endaði á því að kaupa 3 pakka af 5 mín pasta. ;) Svo kom Ólöf vinkona Hönnu og við fórum í Ríkið og fórum svo til Hönnu og þar hitti ég Heru, hundinn hennar sem er algjört krútt og Kalla sem er bandarískur með leigjandi hennar sem spilar á rafmagnsfiðlu og fær borgað í dollurum. Fínn náungi J. Ólöf fékk að setja pastað í pott því Hanna keypti brodway neglur og ég var önnum kafin að setja þær á hana. Svo fór Ólöf bara að lesa blaðið og pastað brann við pottinn því engin af okkur tók tímann :S. Þá fór Hanna og helti því sem var eftir í nýjan pott og  ég hélt áfram að setja á hana neglur. Svo vissum við ekki fyrr en pastað var aftur brunnið!!!! Hún helti þá því fáu sem var eftir í þriðjapottinn og það brann líka!! Þannig að við sættum okkur við heimabakað brauð. ;’D En sem betur fer var mér boðið í mat til Siggu og Vídda í læri sko með sykruðum kartöflum og maður fer aldrei frá þeim svangur! Svo endaði ég bara kvöldið á því að liggja í rafmagns rúminu hans Vídda með fartölvu og risa sjónvarp á móti mér, horfandi á John Tucker must die. Lífið? Svo fórum við bara í Badda íbúð að sofa. Um morguninn fengum við okkur melónu í morgunmat því við ætluðum með Helgu og Löllu á “nítjándu” í brunch. (nítjánda er nítjánda hæðin í toys are us turninum hjá smáralindinni) Ég mæli eindregið með þessum stað því það er allt svo fínnt. útsýnið er glæsilegt, kokkarnir æðislega skemmtilegir og maturinn vá hann var svo mikill!!!!!! Það var for for réttur, for réttur, aðalréttur og eftiréttur!!! Í for for rétt var krabba tómatsúpa, salat og brauð ;d. Í for rétt var allt! Jógúrt í skot glösum, eggjamöffins, vöfflur og pönnukökur með alvöru sýrópi, pasta, egg og beikon og miklu fleira!!!! Vá ég var eginlega bara sprungin og rétt hálfnuð!! Svo í aðalrétt var nautakjöt og lambakjöt með sósu og grænmeti (ég meina í guðaná bænum þetta var brunch!!!) og í eftir rétt var súkkulaði tertur, búðingur, niðurskornir ávextir og ísterta. Úff ég þurfti lítið að borða það sem eftir var af þessum degi og það besta var að þetta kostaði bara 2560 kr. Á mann!!!! Og það er kreppa!!!!!! Ég mun setja myndir inn á myspace af þessum morgunhádegisverði en vélin mín er hjá Löllu í augnarblikinu. Svo fór ég með Jónínu og Löllu að versla meira og keipti eitthvað meira þar ;d. Svo hittum við Vídda, Siggu og afa og fórum á Café Paris í kringlunni og afi pantaði sér stærstu vöfflu sem ég hef séð!!! Svo fórum við og mátuðum gleraugu og ég mátaði ógóflott Chanel gleraugu sem voru örugglega óstjórnlega dýr. Ég þorði ekki að kíkka á veðrið. ;S. Svo fóru ég og Jónína með ömmu og afa í heimsókn til einhverrar konu sem ég þekki ekki neitt og við Jónína sátum bara og borðuðum fullt af oreokexi í þeirri heimsókn. Svo var komið kvöld og allir voru að fara að gera eitthvað og enginn vissi hvað átti að gera við mig ;S. Amma og afi voru boðin í mat til einhvers fólks. Lölla var að fara að djamma, Jónína að passa, Víddi og Sigga að fara í afmæli og Baddi að fara eitthvað man ekki. Þannig að ég hringdi í Jóhönnu og spurði hvað hún væri að fara að gera og hún sagðist vera að fara í afmæli þannig að ég ætlaði bara að leigja mér mynd og kaupa pop og kók og horfa í íbúðinni hans Badda. Svo þegar við vorum alveg að komast að vídeóleigunni þá hringdi Jóhanna og sagði að ég mætti koma með í afmælið til Gunnars Smára sem er kærasti Baddýar því hún komst af því stuttu seinna að hún var eini gesturinn í þessu afmæli og að þetta væri bara matur þannig að ég fór með henni. Í matinn var tortilla og í eftirmat var karamellu og súkkulaði búðingur með nóakroppi, súkkulaðispæni og þeyttum rjóma ;d. Svo töluðum við saman um allt frá gerviauga til afródansar. Svo fóru ég og Hanna og kíktum á nýju íbúðina hennar sem hún var að fá og fórum með Swiftinn í þvottastöð. Svo skilaði hún mér og þá var Baddi komin heim og við horfðum á “How I met your mother” svo fór ég að sofa og  var aldrei vör við ömmu og afa. Um morguninn fórum við í Ikea og borðuðum þar og ég borðaði loksins eitthvað holt og það var grænmetiss buff!! Mæli með því! Svo fórum við bara að keyra heim og hér er ég að blogga og horfa á framhaldsmyndina, Flood sem lítur ekk vel út en ég ælta að segja þetta gott og endilega kommentið en ég er farin í sturtu!

 

 

 

Sjáumst, yfir og út, KEI BÍ!!!

 

p.s. Hvar er lykillinn ohohó, hvar ertu lykilinn sem ég þrái?


» 33 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 19:42:10 / Sunna

Lúúúdóóó!

Komiði sæl og blessuð! Gaman að sjá ykkur!

Jæja í dag er sunnudagur og ég er þegar búin að upplifa 3ja daga langa helgi og á einn frídag eftir!!! Við Sköflungarnir nýttum okkur þessa helgi vel og gerðum margt saman:


á föstudeginum pössuðum við Björn og Sigríði Eddu því Fjóla var úti að borða með Guðna Ágústsyni ásamt öðrum Við horfðum meðal annars á Master of disguise (hvernig sem þetta er skrifað) sem er bara rugl! :lol: En Sigríður Edda var í miklu stuði og fann þrjá bangsa og skírði þá í höfuðið á okkur!;) Sunna, var stór, bleikur póníhestur sem gat hneggjað! Karen, var grænn laaangur krókódíll í bláu vesti og Harpa var stór feitur elgur eða hreindýr við vorum ekki alveg viss.;). Þegar Harpa var búin að svæfa Eddu horfðum við á mynd sem var í sjónvarpinu og hún var um mann sem var byrlað eitur þannig að ef hann myndi slaka á þá myndi hann deyja! góður söguþráður! En við borðuðum mikið nammi og popp og svo þegar hún Fjóla kom södd heim þá fórum við upp í rúm og við fengum að sofa í hjónarúminu því Ingólfur var í göngum og Fjóla svaf bara í Hörpu rúmi. Svo héldum við áfram að horfa á þessa skemmtilegu mynd og hún endaði með því að kallinn kastaðist út úr þyrlu og var að falla til jarðar og ákvað að hringja í konuna sína í fallinu og segja henni að hann væri að deyja en því miður var hún ekki heima þannig að hann tala bara inná símsvaran og svo þegar hann lenti ofaná bíl þá kastaðist hann og datt í götuna og dó. En áður en skjárinn varð svartur þá blikaði hann og þá endaði myndin! Skrítið. En það sem var ennþá skrítnara var að við könnuðumst ekkert smá mikið við hann! En við gátum ómögulega munað úr hvaða mynd hann var! 
En þegar við vorum búnar að liggja dágóða stund uppi í rúmi og spjalla fattaði Sunna að það var fullt af pleimódóti í rúminu og við fundum meðal annars pleimó blóm og pleimóbarn!

Svo lágum við bara og spjölluðum þegar ég fattaði allt í einu að hún var næstum því búin að gleyma daglegu magaæfingunum sínu, þannig að við drifum okkur í því að gera þær og svo sofnuðum við værum svefni. En um nóttina vakanði ég við eitthvað hljóð og pikkaði strax í Hörpu og sagði henni að Sigríður Edda væri komin. Harpa vaknaði strax og vippaði henni fimlega og þá sváfum við fjórar í hjónarúminu sem eftir var. En Sigríður Edda fékk mesta plássið og ég vaknaði stundum við það að hún var að fikta í hárinu á mér eða með rassinn framan í mér eða klípa í handabakið á mér sem henni finnst svo gott, ég náttúrulega kvaldist en endaði með Sunnu undir sæng og svaf þar bara. Um morguninn vöknuðum við Björn Andra þegar hann kom inn í herbergið með svona lúður sem maður hefur á fótbolta leikjum og flautaði á okkur. Svo kom Fjóla inn með þrjá diska með ristuðum brauðum með sultu og osti og ACE safa og glös. Ég held bara að ég hafi aldrei áður fengið morgun mat í rúmið! Svo fóru ég og Sunna. Ég fór heim til mín og þar voru allir að þrífa og mama mia diskurinn í botni í heimabíóinu. Ég tók pínu til í herberginu mínu og svo komu Sunna og Harpa og við horfðum á Ísland-Frakkland og gerðum okkur möffinsdeig og átum fyrir framan sjónvarpið. Harpa kláraði lang fyrst svo ég og ég og Harpa þurftum að klára fyri Sunnu. Svo fóru þær og ég fór til ömmu og afa og horfði á fagnaðarlætin hjá FH þegar þeir tóku við bikarnum. Svo um kvöldið fór ég í Birkilund og hjálpaði Hörpu og Sunnu að passa Ollu, Pétur, Kötlu og Ingó en Ingó var á brókinni allan tíman því hann hafði stigið ofan í hundaskít :L . En við horfðum á Pirates of the Caribian 2 og King Kong. Svo fór ég bara heim og fór að sofa. Svo næsta dag fór ég í pik nik með mömmu, Birnu og Danna. Við sullum 5  sinnum niður kakói og klesstum 4 bláberjum í teppið. Svo þegar við komum heim fóru ég og mamma í ræktina. Þegar það var búið fóru ég og allir hinir í fjölskyldunni í fótbolta í garðinu og svo endaði ég bara á því að fara í sturtu og blogga! Þannig var nú það! En endilega kommentið og ég ætla að setja inn ný gullkorn! Bæjó

 

KEI Bí!


» 28 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 14:00:30 / Sunna

Jæja þá...

Já góðan daginn! Mér sýnist fólk vera farið að bíða eftir bloggi.. Þá blogga ég!
Nú er ég búin að vera eina viku í menntaskóla og líkar það bara vel:) Þar af leiðandi er ég einnig búin að vera eina viku á vistinni og líkar það bara vel líka;) Herbergið er lítið en gott;) Minnsta herbergið á ganginum en það er sko alveg nóg fyrir mig! Ég er því miður ekki með tölvu þar, þannig að það verður eitthvað lítið um blogg á virkum dögum, nema að ég fái eitthvað að kíkja í tölvuna hjá herbergisfélaga mínum, henni Hörpu;) En úr því að ég er byrjuð í menntaskóla þá er auðvitað búið að busa mig:P Jújú, það var gert á þriðjudaginn:) Bekkurinn minn, 1.H þurfti að mæta með bláan kraftgalla, loðinn að innan, það var skipun frá böðlabekknum okkar, 4.H. Svo þurftum við að snúa gallanum við, þannig að loðni parturinn sneri út, við áttum nefnilega að vera rollur;) En minn galli var að sjálfsögðu ekkert loðinn að innan, bara svartur, þannig að ég varð að vera svört rolla, og var máluð öll svört í framan! Við klæddum okkur í búninginn í skólanum og svo skriðum við niður í Kvos á fjórum fótum og jörmuðum:) Þar söfnuðust allir busarnir saman á afmörkuðu svæði þar sem var viðbjóðsleg kremja og ÓGEÐSLEGUR HITI! Sérstaklega af því að við vorum í snjógöllum! En svo sýndi hver og einn bekkur dans sem böðlarnir höfðu kennt okkur. Við vorum að sjálfsögðu með flottasta dansinn hehe;) Því næst var einhver gaur sem hélt ræðu og svo fórum við aftur upp og klæddum okkur úr. Næst fórum við út í ratleik:) Þar þurftum við að leysa ýmsar þrautir, t.d. semja brandara, þvo bíla, búa til leirtyppi, gera armbeygjur og skrapa tyggjó upp af jörðinni! Svo voru réttir;) þar sem við vorum dregin í dilka:) Svo fóru allir í röð og einn í einu fór upp á pall þar sem einhver gaur í skikkju vígði okkur inn í skólann, setti tómatssósu á ennið á okkur og ýtti okkur afturábak niður, þar sem sex strákar gripu okkur. Þá fengum við kleinur og kókómjólk:)
Næst á dagskrá var göngutúr. Við löbbuðum niður í bæ og fengum smá fræðslu um helstu staði á leiðinni;) Svo fórum við í hókí pókí á torginu:) Við löbbuðum svo upp að leikhúsinu og loks upp menntaveginn:) Ég leit aldrei til baka og aldrei niður;)
Að lokum var smá fundur í kvosinni og svo fórum við bara heim:)
Ekki var allt búið enn því um kvöldið var busaballið og 1.H og 1.A hittumst ásamt böðlunum okkar í 4.H í fjósinu og pöntuðum pizzu áður en ballið byrjaði:) Svo var ballið og það var bara gaman:)

Þetta var svakalegt!;) Annars er bara gaman í skólanum, ég er búin að kynnast aðeins krökkunum í bekknum mínum en mér finnst samt skemmtilegra í tímum heldur en frímínútum:P Lífið á vistinni er líka fínt, verst bara að hafa ekki stöð 2 svona þegar allir helstu þættirnir eru að byrja! En það var samt ótrúlega gott að komast heim um helgina:) Ég hitti reyndar Hörpu og Karen á fimmtudaginn, þegar þær fóru í bæinn:) Ég skokkaði bara niður í bæ og hitti þær, svo fórum við á Glerártorg og löbbuðum svo saman upp á vist:)
Lokahófið hjá KA var svo líka á mánudaginn.. við hittumst á Greifanum og fengum pizzu:) Ömurlegt að þurfa að hætta í flokknum! :(

En jæja, nú fer þetta að verða komið gott, þetta hlýtur að vera nóg í bili :)

Kveðja, Sunna ekki lengur busi:)

» 32 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 22:04:32 / Sunna

Turlú!!!

Komiði sæl og blessuð!!!

ég ákvað að kíkka á síðuna og bara skella einu bloggi inn um ekki neitt. Við sköflungarnir spilum nú fótbolta sem aldrei fyrr og erum búnar að fara á the dark knight í tilefni afmælins míns sem var BTW fyri viku og í dag á pabbi minn afmæli!!! merkilegt nokk. Jókerinn fer alveg á kostum í þessari mynd og gerir t.d. eitt galdrabragð sem gjörsamlega enginn getur gert nema hann XD þið vitið hvað ég meina ef þið hafið séð myndina. Synd að herra Ledger sé dáinn :(      Áðan var ég að horfa á the moment of truth sem er bara ruglaðasti þáttur í heimi!!!!! Það er verið að leita að hreinkilnum bandaríkja manni, vá!!! og svo er bara spurt ógeðslegra spurninga eins og ein hljómaði svona:

spyrill: hefur þú horft á hommaklám í meira en eina mínútu?

viðmælandi: já

lygamælir: þetta svar er rétt


og þust mamma hans var þarna!!!!!!!!!!

Jú bíddu það er einn þáttur sem ég hef séð sem mér fynnst asnalegri, ég og auður sáum hann fyrir tveimur árum úti á spáni og hann hét: Date my mom,  og hann var um það að það var einn kall sem átti að eiða þremur dögum með þremur konum (einn dagur á konu) og svo ákveða hvaða konu honum leist best á og fá dóttur hennar!!!!!!!! sjitt sko!!!! og svo endaði þátturinn á því að þau hlupu þrjú út í sólina og leiddust og einusinni meira að segja þá datt dóttirinn af því að hún var svo feit!!! XD 

RUUUUUGL!!!!!



en já ég veit ekkert afhverju ég er að blogga.... en endilega kommentið

HEy ég var að ná í danna í dag í leikskólann og þau eru með bala úti með hornsýlum í og eitt var dáið og danni sagði: karen sjáðu sýlin!!! eitt er frosið sjáðu og tók dauða upp, ég bara já og harpa bara: er hann ekki dáinnn og danni sagði, nei hann er með opin augun. xD

Vitiði hvað mig langar í núna?.. mig langar í:

Specal K bar original

fat boy

svona hlýja sokka úr isabellu

föt

flottu hæla skóna , sunna hapra og júlía þið vitið hvað ég er að tala um :cry:

The dark knight

ferskan ANANAS

JArðaber

jú svo langar mig í svona 15 þúsund króna náttslopp frá ólempíu ahh þeir eru svo mjúkir

og eitthvað fleira






veit ekki vhað ég á að segja meira, jú, á KA æfingu í dag þá var reitarbolti og sá sem var klobbaður fékk rassaskot frá hinum og Júlla var klobbuð tvisvar XDXD   en því miður var sunna sú eina sem hitti í rassinn á henni :$:haha: já svo voru svo fáir að það var farið í fótbolta Grenivík VS AK og grenivík tótalí vann með tveggja marka mun 10:8 og Egill þjálfari var meira að segja með hinum!!!

en já ég segi þetta komið gott bless,,, og vonandi var þetta áhugavert bullblogg

KAREN Bj

» 30 hafa sagt sína skoðun

04.08.2008 13:46:25 / Sunna

DANMÖRK :D

 

Jæja! Þá kemur hún! Ferðasagan ógurlega! Ég tek enga ábyrgð á því ef þið verðið fyrir vonbrigðum með hana en jæja.

 

Þetta hófst allt saman miðvikudaginn 23. júlí. Ég vaknaði snemma, fór upp í skóla að þrífa og fór svo heim og kláraði að taka mig til. Svo komu Þorsteinn og Gerða, við fengum okkur hádegismat og lögðum svo af stað:) Ferðin suður gekk bara vel, ekkert merkilegt að segja frá þar:) Við vorum komin til Reykjavíkur á milli sjö og átta og stoppuðum hjá Völu því flugið var ekki fyrr en klukkan eitt. Eftir gott stopp lögðum við af stað til Keflavíkur og vorum mætt í Leifstöð á skikkanlegum tíma hehe;) Helstu tíðindi þar eru að ég keypti mér iPod heyrnartól, Þorsteinn sá Sverri Bergmann Í TÖLVU og Ólafur Stefánsson var í rólegheitum að skoða geisladiska í Skífunni þegar hann var kallaður í flug sem síðasti farþeginn:haha: XD


Eins og ég sagði þá byrjaði flugið klukkan eitt um nóttina og við sátum AFTAST!:o Við gátum ekki einu sinni hallað sætunum aftur! Ekki sérlega heppilegt þar sem þetta var næturflug og þar vill maður helst reyna að sofna. Ekki bætti það neitt að maðurinn fyrir framan mig þurfti endilega að halla sínu sæti aftur þannig að ég var með mjög lítið pláss:frown: Ég dottaði samt dálítið oft en sofnaði þó aldrei almennilega. Aðra sögu er þó að segja um Gerðu sem hefur aldrei sofið svona vel í flugvél! Flugferðin tók þrjá tíma og við lentum um klukkan fjögur að íslenskum tíma en sex að dönskum tíma þannig að þegar við lentum var kominn morgunn, glampandi sól og frábært veður! Mjög skrýtið... Við drifum okkur bara að ná í töskurnar og fórum svo og keyptum lestarmiða til Horsens. Það var ekki til lest sem fór alla leið til Horsens þannig að við þyrftum ekki að skipta nema eftir rúman klukkutíma þannig að við tókum það og þurftum að bíða á flugvellinum í einhvern klukkutíma. Ég hafði náttúrulega ekkert sofið þannig að ég hefði átt að vera mjög þreytt, en um leið og maður sá að það var sól og bara hreinlega dagur þá varð maður svo miklu minna þreyttur! En jæja, klukkan 7:40 að dönskum tíma fórum við í lestina og við tók þriggja tíma lestarferðalag til Horsens! Það var samt mjög þægilegt að vera í lestinni og bara frekar gaman, miklu léttara að sofna t.d. :D Ég tók slatta af léttum dúrum og sofnaði svona nánast, ekki samt alveg.
Við vorum svo loksins komin til Horsens klukkan svona korter í ellefu og þá tókum við taxa að húsinu þar sem við gistum:) Við gistum nefnilega hjá föðursystur Gerðu og manninum hennar og þremur dætrum þeirra, eins, fjögurra og sjö ára:D Þau voru reyndar í ferðalagi og komu ekki heim fyrr en á laugardagskvöldið þannig að fyrst um sinn vorum við með húsið alveg ein:) En við komum okkur allavega fyrir og svona og svo fórum við að sofa;) Sváfum til svona tvö:) Svo var dagurinn bara svona "tjill" dagur eins og maður segir á góðri íslensku;) Gerðum voða lítið, keyptum mat í búð sem var rétt hjá, horfðum á sjónvarpið og fórum á trampólínið;) Svo um kvöldið fórum við í smá göngutúr um svæðið og tókum slatta af myndum hehe;) Ef þið eigið myspace þá getið þið séð þær á www.myspace.com/sunnazool :D


Daginn eftir, semsagt föstudaginn, fórum við í verslunarleiðangur í miðbæ Horsens;) Þarna var góð göngugata og svo moll í enda götunnar:) Fyrr en varði var ég búin að kaupa mér bol og peysu áður en Gerða, sem ætlaði svo að standa sig í innkaupunum, var ekki búin að kaupa sér eina einustu flík! Þorsteinn Björnsson var meira að segja búinn að kaupa sér bæði peysu og stakk! En hún náði nú að kaupa eitthvað í restina:) Þetta var mjög fínn dagur, ég keypti mér ís:D (surprise, surprise) Ég gleymdi alveg að minnast á veðrið! Guð minn góður, það var frábært! Eiginlega of gott samt! Hitinn var alltaf á bilinu 25-30, það var alltaf heiðskýrt og glampandi sól allan daginn! Maður varð bara sveittur af minnstu áreynslu;) Ég þakka bara fyrir tækið sem var mikið notað, viftuna!:D Hún var alltaf í gangi inni í stofu og bjargaði manni frá bráðnun oft á tíðum;)
Svo verð ég líka að minnast á köngulærnar. Þær voru alls staðar! Þar sem einhvers staðar voru tveir hlutir á móti hverjum öðrum var kominn köngulóarvefur á milli! Það var bara svakalegt:D En það var allavega bara úti þannig að það slapp:D



Jæja. Þá var það laugardagurinn. Þann dag fórum við í Legoland :D Tókum rútu til Billund og löbbuðum svo í Legoland. Vá! Það var ekkert smááá flott þarna! Gjörsamlega allt úr lego og svo var líka bara svo fallegt þarna. Fullt af trjám og gróðri og bara flott landslag! :D Reyndar var þetta þannig bara alls staðar þarna í Danmörku, fullt af trjám og gróðri og ótrúlega fallegt:) Allir garðar snyrtilegir og allt til fyrirmyndar;) En jæja, Legoland var snilld;) Þar voru líka hin ýmsu tæki, missgóð þó;) Tvö tæki stóðu upp úr að mínu mati;) Það voru X-treme racers og power builder :D Ég nenni ekki að útskýra þau hérna en ef þið viljið endilega fræðast eitthvað um þau þá getiði kíkt á www.legoland.dk :D
Þessi dagur var mjög heitur og menn voru vel rauðir eftir hann;)
Við vorum þarna í Legolandi alveg til svona sjö því þá kom rútan heim:)
Þegar við vorum nýkomin heim kom svo fjölskyldan, eigendur hússins, heim:) Stelpurnar, Hanna og Hildur, 7 og 4 ára byrjuðu strax að tala við mig, engin feimni í gangi þar! Þær eru algjörir snillingar;)

Jæja, þá er það sunnudagurinn. Við Þorsteinn og Gerða ákváðum að fara með Hönnu og Hildi í sund:) Það var mjög gaman, snilldar sundlaug með snilldar rennibraut og stökkpöllum og alles;) Ég prófaði minnsta stökkpallinn;) Ég fór slatta af ferðum með Hönnu í rennibrautina, ekkert smá mikið stuð, maður rann mjög hratt;) Eftir sundið fengum við okkur að sjálfsögðu ís;)
Svo fór dagurinn bara í það að bíða eftir tónleikunum og ég var mikið í því að leika við stelpurnar;) Fórum í Twister og stoppdans og fótbolta og nefndu það:D
En þá var komið að aðalmálinu. TÓNLEIKUNUM! :D Það var byrjað að hleypa inn klukkan sex en við nenntum ekkert að mæta þá heldur mættum við um klukkan hálf átta. Þá var Lauren Harris að hita upp, hún var nú ekkert spes, þótt hún sé dóttir Steve Harris! Svo hituðu Avenged Sevenfold upp, þeir voru fínir. Svo klukkan hálf níu byrjaði svo loksins IRON MAIDEN!!! Og þvílíkir tónleikar! Þeir voru í fanta stuði og söngurinn frábær!:D Gerðu fannst þeir skemmtilegri en hún bjóst við en hún sá samt ekki það mikið því hún var miklu meira að fylgjast með fólkinu í kringum sig en tónleikunum sjálfum hehe;) Það var líka nánast hver einast maður með bjór og svo reykti annar hver maður! Þetta var viðbjóður! En engu að síður, góðir tónleikar;)

 

Mánudagurinn rann svo upp;) Það var einmitt afmælisdagur Evu, yngstu stelpunnar á heimilinu en hún varð eins árs:) Við Þorsteinn og Gerða fórum með Freyju, eða Diddu, í búð sem var svona eins og RISASTÓRT Hagkaup! Svona búð þar sem allt var til;) Svo fór dagurinn bara í t.d. Lúdó spil! Við spiluðum þónokkur Lúdóspil;) Ég fór líka í Twister og stoppdans og á trampólínið og í fótbolta og svo áttu stelpurnar svona litla buslulaug sem við blésum upp og fylltum af vatni og fórum í:D Semsagt ég, Hanna og Hildur:) Stuð þar á ferð;)


Þriðjudagurinn var svo síðasti heili dagurinn okkar þarna:( En þann dag fórum við til Vejle sem er næsti bær við Horsens og versluðum;) Þar var líka svona göngugata og moll, stærra moll en í Horsens;) Ég keypti mér bol í New Yorker og brók í Topshop;) Gerða tók þar betur við sér og náði að kaupa slatta;) Þorsteinn keypti sér bol og sólgleraugu eftir að það sullaðist sósa í bolinn sem hann var í eftir lélegu þjónustuna á Jensens:frown: Nenni ekki að tjá mig um það:S En þetta var allavega fínn dagur:)
Þegar heim var komið spiluðum við Scrabble og Sequence:D Það var gaman;)



Að lokum kom miðvikudagur. Við gengum frá og borðuðum og kvöddum og fórum svo á lestarstöðina um klukkan eitt minnir mig. Lestin fór af stað klukkan hálf tvö og við vorum komin á Kastrup klukkan hálf fimm. Við vorum mjög fljót að tjékka okkur inn og við tók mikil bið, alveg þrír klukkutímar! Hehe;) Við keyptum okkur meira að segja spil og fórum að spila;) En ég var sátt því að ég keypti mér......... MAGNUM DOUBLE CARAMEL!!! Jájá, alltaf hátíð þegar það gerist;) En flugið átti að vera klukkan korter í átta en það frestaðist til hálf níu þannig að enn lengdist biðin. En við komumst í loftið að lokum:) Það besta við þetta flug var að í hverju einasta sæti var sjónvarp!:D Og í hverju sjónvarpi var svona valmynd þar sem hægt var að velja eitthvað til að gera, hlusta á tónlist, horfa á myndir, horfa á þætti og fleira:) Það var líka hægt að spila leiki en til þess þurfti maður að kaupa stýripinna sem kostaði 2000 kr.:o Það var heldur ekki mikið úrval af myndum tónlist og þáttum en það voru til nokkrir simpsons þættir og ég horfði bara á þá:D Svo fengum við líka flugvélamat sem var bara fínn:D Við lentum klukkan hálf tíu að íslenskum tíma og keyrðum heim til Völu og gistum þar:) Ég svaf í sófanum;)

Nú jæja, daginn eftir keyrðum við heim:D Það var mjög gott að koma heim og hitta allt fólkið aftur:D En það var líka frábært í Danmörku og ég vil bara þakka Þorsteini og Gerðu fyrir ferðalagið;)

Ég ætla að enda þetta blogg á fyndnasta atviki ferðarinnar, allavega að mati mínu og Gerðu:haha:

Þorsteinn var að fara að hringja í Taxa. Þegar hann var búinn að peppa sig upp þá hringdi hann og talaði bara ensku. Í staðinn fyrir að svara "Hi" eða "Hello" þá svaraði hann:
"Yeeahh, is this the taxi station?" Æii þetta var bara svo fyndið:D

 

Nu gider jeg ikke skrive mere...

Hej hej!

Tak tak!

 

Sunna den dansk ROLLA :D


» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Heimsóknir
Í dag:  41  Alls: 127831
Leitarbox

Klukkan
Könnun
Hver er flottastur!?




Textabox
Nýtt!

Blogg!
Pínu breytt Bjútí ;P

Dagsetning
23. febrúar 2012